Vínarkvöld Heimis 14. janúar

Á heimasíðu Karlakórsins Heimis í Skagafirði segir að einsöngvararnir Helga Rós og Óskar Pétursson ásamt hljómsveitinni Salón Islandus bjóði upp á fyrsta flokks Vínartónlist á nýársskemmtun í Miðgarði þann 14. Janúar, sem er alger nýjung hér í Skagafirði.  Hátíðarræða köldsins verður flutt af Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra.

 

Í hljómssveitinni leika átta hljóðfæraleikarar, 2 fiðlur, selló, kontrabassi, klarinett, flauta, píanó og slagverk úr röðum færustu tónlistarmanna landsins. Þar má telja Sigurð Ingva Snorrason, sem leiðir bandið, Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Pétur Grétarsson.

Tónleikarnir líða svo út í dansleik þar sem dansað verður við undirleik Salón Islandus undir styrkri dansstjórn Loga Vígþórssonar, hins vinsæla danskennara Skagafirðinga til margra ára. Tónleikarnir hefjast kl 20:30 og dansi lýkur kl 1:00 eftir miðnætti.

Sjá nánar á Heimir.is

Fleiri fréttir