Vínarkvöld í Miðgarði - nýársskemmtun
Vínarkvöld verður haldið í Varmahlíð þann 14. janúar nk. Þar munu Karlakórinn Heimir, einsöngvararnir Helga Rós og Óskar Pétursson ásamt hljómsveitinni Salón Islandus bjóða upp á fyrsta flokks Vínartónlist á nýársskemmtun í Miðgarði.
Um vínartónlist segir á heimasíðu karlakórsins:
„Vínartónlistin er í léttari kanti sígildrar tónlistar. Þekktastir eru líklega vínarvalsar Straussfeðga og óperettutónlist Lehars o.fl. Þetta er aðgengileg, létt og upplífgandi tónlist, áhyggjulaus og eðlileg, ákaflega hressandi í skammdeginu. Vínartónlist er samt meira en Straussvalsar og óperettukórar. Marsar og mazúrkar ásamt öðrum taktvísum gömlu dansanna kalla á að tónleikarnir endi með dansleik þar sem gestum gefst færi á að stíga dans við undirleik sinfónískrar hljómsveitar og rifja upp valsa, polka og aðra klassíska dansa undir leiðsögn dansstjóra upp á gamla móðinn.“
Á heimasíðu Heimis segir jafnframt að um sé að ræða algjöra nýjung í Skagafirði. Í hljómssveitinni leika átta hljóðfæraleikarar, tvær fiðlur, kontrabassi, selló, flauta, klarinett, píanó og slagverk úr röðum færustu tónlistarmanna landsins. Má þar nefna Sigurð Ingva Snorrason sem leiðir bandið, Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Pétur Grétarsson. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra flytur hátíðarræðu kvöldsins.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og munu þeir svo líða út í dansleik þar sem dansað verður við undirleik Salón Islandus undir styrkri dansstjórn Loga Vígþórssonar, hins vinsæla danskennara Skagafirðinga til margra ára. Dagskránni lýkur kl. 1:00 eftir miðnætti.
Forsala aðgöngumiða er í Kompunni við Aðalgötu og í KS Varmahlíð og hefst 25. nóvember. Miðar fást í gjafaumbúðum, tilvalið til jólagjafa.