Vinningsmyndir í ljósmyndasamkeppni Félags ferðaþjónustunnar
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði stóð nýverið fyrir ljósmyndasamkeppninni Skagafjörður með þínum augum. Í keppnina barst fjöldi mynda og var myndefnið fjölbreytt. Nú hafa myndirnar verið birtar á vef Svf. Skagafjarðar
Veitt voru verðlaun í fimm flokkum og varð niðurstaðan eftirfarandi:
1. Mannlíf: Messa í Ábæjarkirkju, höfundur Katrín Magnúsdóttir.
2. Listrænt: Ernan úr lofti, höfundur Norbert Ferencson.
3. Ljós í myrkri: Grafarkirkja, höfundur Norbert Ferencson.
4. Hestar: Hestur að sprella, höfundur Christoph Dorsch.
5. Landslag: Sólsetur, höfundur Einar Gíslason.
Dómarar keppninnar voru Óli Arnar Brynjarsson, Hjalti Árnason og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson.
Á Skagafjörður.is segir að verðlaunin sem vinningshafarnir fengu hafi verið vegleg en leitað var til nokkurra fyrirtækja með verðlaun. Skrautmen gaf löber og taupoka. Hilma - Hönnun og handverk gaf hringtrefil. Lýtingsstaðir gaf tveggja klukkustunda hestaferð fyrir tvo. Viking Rafting gaf ferð fyrir tvo í rafting. Bakkaflöt gaf kajakferð fyrir tvo í Svartá. 1238 Battle of Iceland gaf þrjú gjafabréf fyrir tvo á sýndarveruleikasýningu. Sölvanes, Birkihlíð, Stórhóll og Laugamýri gáfu matarkörfur frá framleiðendum Beint frá býli/matur úr héraði.
HÉR má sjá vinningsmyndirnar:
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.