Vinnufundur um stefnumótun í ferðaþjónustu í Skagafirði
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur, í samráði við Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði, samið við Þorgeir Pálsson hjá Thorp Consulting um að stýra endurskoðun á stefnumótun í ferðaþjónustu í Skagafirði. Þorgeir hefur mikla reynslu á þessu sviði og kom m.a. að mótun hins nýja Vegvísis í ferðaþjónustu, nýrri ferðamálastefnu sem kynnt var í október sl.
„Við ætlum að hefja vinnuna með því að boða til opins vinnufundar á morgun, miðvikudag, kl. 13 á Kaffi Krók á Sauðárkróki. Við reiknum með að fundurinn vari í 3-4 klukkustundir,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Á fundinum er ætlunin að fara í eins konar stöðumat þar sem helstu hagsmunaaðilar komi saman og sammælist um tilgang og umfang verkefnisins. „Ég vonast til að sjá sem flesta á fundinum, því við þurfum á virkri þátttöku að halda til að hafa sem best gagn af vinnunni framundan,“ sagði Sigfús Ingi og biður hann fólk um að láta sig vita um þátttöku á netfangið sigfus@skagafjordur.is.