Vinnuvakan á sunnudaginn

Hin árlega vinnuvaka, sem er fjáröflunarsamkoma Sambands skagfirskra kvenna, verður haldin í Varmahlíðarskóla á sunnudaginn kemur og stendur frá kl 15 til og með 18:00. Að vanda verður boðið upp á handverk, kökubasar og kaffisölu.

Ágóðinn að þessu sinni rennur til björgunarsveitanna í Skagafirði, sem verða á staðnum kynna starfsemi sína og búnað.

Í tilkynningu frá Sambandi Skagfirskra kemur fram að allir eru velkomnir og vakin er athygli á því að ekki er tekið við greiðslukortum.

Fleiri fréttir