Vinnuvélar Símonar með lægsta tilboð

Þriðjudaginn 2. júlí sl. voru opnuð tilboð í verkið  "Sauðárkrókur stofnlagnir 2013, Ráðhús-Helgafell og hafnarsvæðið" á skrifstofu Skagafjarðarveitna á Sauðárkróki.

 
Annars vegar er um að ræða 830 m langa stállögn frá núverandi stofnlögn norðan við Ráðhúsið í gatnamótum Skagfirðingabrautar og Skólastígs að stofnlögn við Helgafell sem er nyrsta húsið við Aðalgötu. Hins vegar er um að ræða 590 m langa stállögn frá tengistað við núverandi stállögn vestan Eyrarvegarins rétt sunnan gatnamótanna að höfninni og austur hafnarsvæðið að fiskþurrkunarhúsinu sem er þar í byggingu. Það hús mun þurfa mikið af heitu vatni og segir Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar að meðalnotkun þess verði líklega svipuð og heitavatnsnotkun Túnahverfisins. -Hönnun lagnanna niður á Eyri gerir þó ráð fyrir enn meiri notkun í framtíðinni með frekari atvinnuuppbyggingu á svæðinu í huga, segir Indriði.

Verklok eru áætluð 1. nóvember 2013.

Eftirfarandi tilboð bárust :

Fjörður ehf.                                29.229.800         126,3%

Steypustöð Skagafjarðar ehf    25.370.900          109,6%

Vinnuvélar Símonar ehf.            21.466.800          92,7%

Kostnaðaráætlun Stoð ehf.        23.152.300         100%

Fleiri fréttir