Virtu ekki lokanir og fengu að bíða til morguns
feykir.is
Skagafjörður
14.02.2015
kl. 10.47
Tveir erlendir ferðamenn sátu í föstum bíl sínum efst í Norðurárdal yfir nótt í vikunni. Þeir óku framhjá lokunarskilti sem gaf ótvírætt til kynna að framundan væri ófærð og festu bílinn fljótt og örugglega. Vísir.is greinir frá þessu.
Á ellefta tímanum í sl. þriðjudagskvöld höfðu þeir samband við tengilið sinn á Akureyri sem hringdi í lögreglu. Lögreglan á Norðurlandi vestra mat stöðu mannanna svo, meðal annars út frá því að þeir hefðu eldsneyti á bílnum til morguns og því væsti ekki um þá, að þeir yrðu að bíða eftir að Vegagerðarmenn færu af stað með morgninum.
Þeir lögðu af stað um sex leitið að morgni miðvikudags.