„Vísindi og grautur“ á Hólum

Fyrirlestraröðin Vísindi og grautur á vegum Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum hefst miðvikudaginn 5. október nk. Þar mun Jakob S. Jónsson, verkefnisstjóri og leikstjóri, halda fyrirlestur um menningararf í Marieholm, litlum bæ í Svíþjóð.

Jakob hefur verið búsettur þar í landi í mörg ár og stýrði m.a. verkefni um byggðaþróun í Marieholm. Þar lýsir hann hvernig þessi bær vann að styrkingu sinnar byggðar með því að nýta sér menningararfleið staðarins.

Fyrirlesturinn mun fara fram í stofu 205 í Háskólanum á Hólum, kl. 11.15-12.00.

 

Fleiri fréttir