Vísindi og grautur í mars og apríl
Tveir fyrirlestrar í fyrirlestraröðinni "Vísindi og grautur" verða haldnir í mars og apríl við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum. Að þessu sinni eru það þekktir ástralskir fræðimenn sem flytja fyrirlestrana.
Dr. Anne Buchmann flytur fyrirlestur þann 19. mars nk., en erindi hennar ber heitið "Changes of Recreational Hobbies in the Rural Community" en þar fjallar hún m.a. um hestaferðaþjónustu og hagsmunaárekstra þeirra sem stunda mismunandi form afþreyingar svo sem mótorsport annars vegar og hestamennsku hins vegar.
Prófessor Susan Moore flytur svo fyrirlestur þann 22. apríl og heitir erindi hennar "Developing and managing wildlife tourism for sustainability". Í erindi sínu fjallar Susan m.a. um stjórnun og mat á sjálfbærni í ferðaþjónustu sem byggir á villtu dýralífi.
Báðir þessir fyrirlestrar veita innsýn í rannsóknir á ferðaþjónustu í Ástralíu og gefa möguleika samanburði við íslenskar aðstæður og umræðu um stöðu mála hérlendis.
Fyrirlestrarnir fara fram á Hólum í stofu 303 en einnig er hægt að hlusta á þá í fjarfundi í Háskóla Íslands í kjallaranum í Odda. Báðir fyrirlestrarnir hefjast kl. 11.15.