Völsungar gengu aftur
Tindastóll/Hvöt léku við fagurgræna Völsunga í gær en leikið var á Húsavíkurvelli. Okkar menn yfirspiluðu heimamenn framan af leik og voru komnir með góða stöðu þegar um hálftími lifði leiks en tókst að glutra niður tveggja marka forystu og tapa leiknum. Lokatölur 3-2 fyrir Völsunga.
Lið Tindastóls/Hvatar var sterkari aðilinn allan fyrri hálfleik og leiddi 1-0 í hálfleik með marki frá tenniskappanum Arnari Sigurðssyni. Fyrsta stundarfjórðunginn í síðari hálfleik voru okkar menn mun sterkari og uppskáru mark á 60. mínútu þegar Ingvi Hrannar Ómarsson gerði laglegt mark. Nú hefði mátt halda að allt líf væri úr Völsungum en svo var ekki, þeir fylltust baráttuvilja og minnkuðu muninn undir eins og þeir jöfnuðu síðan leikinn 10 mínútum síðar. Sigurmarkið í leiknum kom á 82. mínútu og þrátt fyrir að leikmenn Tindastóls/Hvatar hafi lagt allt í að jafna metin kom allt fyrir ekki.
Donni þjálfari þurfti að gera nokkrar breytingar á liði Tindastóls/Hvatar fyrir leikinn en Milan var í banni og þeir Árni Einar, Hallgrímur og Benni voru ekki með. Með sigri hefði lið Tindastóls/Hvatar náð að klóra sig upp í toppbaráttu 2. deildar en tapið þýðir að sjö lið eru nú með svipaðan stigafjölda um miðja deild að fyrri umferð lokinni. Næsti leikur verður leikinn á Blönduósi nk. laugardag en þá fá kapparnir lið Hattar frá Egilsstöðum í heimsókn en Höttur er í öðru sæti.