Vonast til að leikskólabygging á Hofsósi fari í útboð innan skamms

Stækka á skólahúsnæði Grunnskóla austan Vatna á Hofsósi sem myndi þá einnig hýsa leikskólaborn staðarins. Mynd: PF.
Stækka á skólahúsnæði Grunnskóla austan Vatna á Hofsósi sem myndi þá einnig hýsa leikskólaborn staðarins. Mynd: PF.

Byggðaráð Svf. Skagafjarðar tók fyrir, á fundi sínum í gær, tölvupóst frá Íbúasamtökunum Byggjum upp Hofsós og nágrenni og Foreldrafélagi leikskólans Barnaborgar á Hofsósi þar sem óskað var eftir upplýsingum um stöðu fyrirhugaðrar leikskólabyggingar á staðnum. Vonast er til að verkið fari í útboð eftir mánuð. „Í meirihlutasáttmála Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna í Skagafirði er m.a. gert ráð fyrir uppbyggingu íþróttahúss á Hofsósi og er það von okkar að hönnun á slíku húsnæði geti hafist á árinu 2020,“ segir í bókun.

Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti stöðu verksins eftir breytingu á hönnuninni sem lýtur að stækkun vegna lagna- og tækjarýmis.

Byggðarráð ítrekar að verkefninu verði hraðað sem kostur er og er stefnt að því að verkefnið fari í útboð um mánaðamótin september/október næstkomandi.

Bjarni Jónsson, Vg og óháð, er ekki ánægður með gang mála og óskaði bókað:
„Undirritaður lýsir miklum vonbrigðum með hve dregist hefur að koma uppbyggingu á nýrri leikskólaaðstöðu á stað á Hofsósi ásamt, frekari íþróttaaðstöðu, og endurgerð annarra skólamannvirkja sem því tengjast. Málið hefur ítrekað verið tekið upp af okkar ósk á undanförnum misserum og árum. Vonandi hyllir nú undir að verkið komist á stað og langþráðar endurbætur á skólamannvirkjum og nýr leikskóli verði að veruleika.“

Ólafur Bjarni Haraldsson, Byggðalistanum, fannst óásættanlegt hve stutt verkefnið væri komið en var ánægður með samstöðu innan byggðarráðs með það. Hann lét bóka eftirfarandi: „Gert var ráð fyrir fjármagni til hönnunar húsnæðisins í fjárhagsáætlun 2017. Það að verkið skuli svo ekki vera komið lengra en raun ber vitni er því óásættanlegt. Það er þó ánægjulegt að sjá að samstaða virðist vera innan byggðarráðs um að verkefnið verði að veruleika og að því verði flýtt sem kostur er.“

Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarflokki og Gísli Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, tóku undir óánægju félaga sinna í byggðaráðinu hversu langan tíma hafi tekið að hefja verkefnið. Bentu þeir á í bókun sinni að áfram þurfi að halda í uppbyggingu skóla- íþróttamannvirkja á Hofsósi m.a. uppbyggingu íþróttahúss. Hönnun á slíku húsnæði gæti hafist á árinu 2020.

Bókun Stefáns og Gísla hljóðar svo: „Fulltrúar meirihluta í byggðarráði vilja láta bóka að slæmt sé hversu langan tíma hafi tekið að koma umræddu verki í gang. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 er gert ráð fyrir að verkefnið fari af stað á árinu og áfram er stefnt að því. Um er að ræða verkefni sem er mikilvægt samfélaginu á svæðinu og mun það verða til mikilla bóta. Sömuleiðis er ljóst að áfram þarf að halda í uppbyggingu skóla- íþróttamannvirkja á Hofsósi og er það á stefnuskrá núverandi meirihluta að svo verði. Í meirihlutasáttmála Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna í Skagafirði er m.a. gert ráð fyrir uppbyggingu íþróttahúss á Hofsósi og er það von okkar að hönnun á slíku húsnæði geti hafist á árinu 2020.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir