„Vorið kemur bráðum“

Vorhátíð Vélavals verður haldin föstudaginn 15. apríl. Boðið verður upp á grillaðar pylsur í hádeginu. Í fréttatilkynningu frá versluninni segir að vorvörurnar séu farnar að streyma inn, m.a. fullt af nýjum leiktækjum fyrir landbúnað.
„Eftir kvöldverk verður botnfylli í brynningarskálum og spekingaspjall,“ segir enn fremur í fréttatilkynningunni, sem endar á þessari vísu:
Lítið inn í Vélaval
vorið kemur bráðum.
Eigum stund sem efla skal
okkar fólk í ráðum.