Vormót Molduxa 2014
Vormót Molduxa í körfubolta verður haldið í dag, laugardaginn 5. apríl, í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu). Á heimasíðu Molduxana segir að þar koma saman samkvæmt hundgamalli venju allir helstu núlifandi körfuboltasnillingar landsins, 40 ára og eldri og spila körfubolta á heimsmælikvarða og skemmta sér saman eins og enginn sé morgundagurinn.
Mótið verður sett kl. 12:50 en hefst kl. 13. Áætlað er að því ljúki kl. 16:10 en þá verður afhending verðlauna og veitingar í boði Molduxa. Að venju verður svo kvöldverður, að þessu sinni hjá Gott í gogginn, og skemmtun um kvöldið.
Riðlaskipting fyrir Molduxamótið 2014 er eftirfarandi:
Riðlaskipting
A - Riðill B -Riðill
Dvergar Valur
Skotfélagið Molduxar
Fram ÍS Lordarnir
Leikjaniðurröðun
Kl Völlur 1 Kl Völlur 2
12:50
Upphitun / Mótsetning
12:50 Upphitun / Mótsetning
13:00 Dvergar - Skotfélag 13:00 Molduxar - Valur
13:40 Dvergar - Fram 13:40 Molduxar - ÍS Lordar
14:20 Fram - Skotfélag 14:20 Valur - ÍS Lordar
15:00 A2 - B2 15:00 A3 - B3
15:40 A1 - B1