Vörukarfan Í Skagfirðingabúð hækkaði um 3% á rúmum mánuði
Vörukarfa ASÍ hækkaði um 3,2% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga frá því í júlí (viku 28) þar til nú í lok ágúst (viku 35). Ef þessi hækkun Kaupfélags Skagfirðinga væri dæmigerð fyrir aðra mánuði ársins samsvaraði hún ársverðbólgu upp á 26%. Á þessum sjö vikum hækkaði vörukarfan hjá níu verslunum af fimmtán. Vörukarfan lækkaði hjá sex verslunum, mest hjá Tíu-ellefu. Vörukarfan stóð í stað hjá Samkaupum-Úrvali. Þetta kemur fram á vefsíðu ASÍ.
Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eins og áður segir (3,2%), en einnig hjá Víði (2,5%), Nóatúni (2,1%), Iceland (2%), Bónus (0,8%), Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga (0,7%), Nettó (0,6%) og hjá Samkaupum-Strax og Kaskó (0,4%). Vörukarfan lækkaði mest hjá Tíu-ellefu (-1,2%), Krónunni (-0,9%), Hagkaupum (-0,6%), Kjarval (-0,4%) og hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar (-0,1%). Engar verðbreytingar voru á vörukörfunni hjá Samkaupum-Úrvali.
Vörukarfan hækkaði mest um 3% á rúmum mánuði. Mynd: asi.is.
Eftir því sem kemur fram á vef ASÍ mælir verðlagseftirlitið breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.
Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Ekki fengust nein viðbrögð frá KS þó eftir því væri leitað