Vörukarfan lækkar hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í janúar 2013 (viku 5) þar til nú í byrjun nóvember (viku 44), nema hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga þar sem hún lækkar í verði á milli mælinga. Mesta hækkunin var hins vegar 6,4% hjá Iceland.
Á vefsíðu ASÍ segir að á tímabilinu megi sjá miklar hækkanir á mjólkurvörum, kjötvörum og sætindum. Grænmeti og ávextir lækkuðu hins vegar í verði hjá 10 verslunum af 15. Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði eins og fyrr segir mest hjá Iceland um 6,4%, 5% hjá Víði, 4,2% hjá Bónus, 4% hjá Nettó, 3,7% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og 3,4% hjá Samkaupum-Úrvali.
Hjá tveimur verslunum lækkaði karfan á tímabilinu eða um 2,8% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga og um 1,2% hjá Hagkaupum. Hjá Kaskó stóð verðið nánast í stað.