Vorum bara lélegir í leiknum, segir Bárður
Bárður Eyþórsson þjálfari Tindastóls var allt annað en sáttur við leik sinna manna í gær er liðið beið lægri hlut fyrir Snæfelli í Express deildinni í körfubolta. Leikurinn varð hörkuspennandi í lokin og mikil dramatík á lokasekúndunum. -Við vorum bara lélegir í leiknum, sagði Bárður eftir að leikurinn hafði verið flautaður af.
-Við áttum bara að vinna þennan leik, það er ekki flóknara en það. Það var allt á móti okkur í kvöld, ég verð bara að segja það, sagði svekktur þjálfarinn en vildi ekki gefa út nánari skýringar þó leiða megi að því líkum að þar hafi hann átt við dómgæsluna sem að mati margra varð liðinu að falli í lokin. -Ég á eftir að horfa betur á þetta á vídeó-upptökunni til að fá það staðfest.
Um frammistöðu nýju leikmannanna vildi Bárður lítið segja en áréttaði að liðið sjálft hafi ekki staðið sig. -Mér fannst liðið bara ekki vera sjálft að standa sig. Við vorum búnir að undirbúa okkur fyrir leikinn, það var ekkert sem kom okkur á óvart en undirbúningurinn segir ekkert ef mennirnir koma svo ekki tibúnir til leiks.
Næsti leikur Tindastóls er á sunnudag á móti Þór Þorlákshöfn í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins hér heima. – Já, sem betur fer er stutt í næsta leik. Við eigum að vera fljótir að snúa blaðinu við, segir Bárður og þá er bara að mæta á sunnudaginn og fylla bekkina. Leikurinn hefst kl. 19.15.