Wake me up before you gogo
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
17.01.2014
kl. 10.53
Árshátíð eldri nemenda Varmahlíðarskóla verður haldin í kvöld, föstudaginn 17. janúar kl. 20:00 í Miðgarði. Nemendurnir munu flytja söngleikinn Wake Me Up Before You GoGo, eftir rithöfundinn Hallgrím Helgason, en söngleikurinn er byggður á helstu lagaperlum "eighties" tímabilsins.
Miðaverð er kr. 2500- Frítt fyrir börn á skólaaldri. Kaffiveisla í skólanum verður eftir sýningu og er hún innifalin í miðaverði. Enginn posi verður á staðnum.
Að lokinni sýningu verður grunnskólaball í Miðgarði frá kl.22:00 - 00:30, hljómsveitin ,,Athygli" mun leika fyrir dansi. Miðaverð á ballið er kr. 1000-.