Yfir 100 nemendur hafa sótt námskeið Fornverkaskólans
Á vef Byggðasafns Skagfirðinga segir að enn einu mikilvægu skrefi í uppbyggingu og varðveislu húsa á Tyrfingsstöðum sé nú lokið þar sem Bragi Skúlason trésmíðameistari og Helgi Sigurðsson torf- og grjóthleðslumeistari hafa stýrt viðgerðum ásamt starfsmönnum safnsins. Báðir eru þeir Helgi og Bragi jafnframt kennarar á námskeiðum Fornverkaskólans, sem safnið er aðili að og stendur fyrir kennslu gamalla aðferða við smíðar.
Helgi, Bragi og Bryndís Zoëga, sem bæði er skráningarstjóri Tyrfingsstaðaverkefnisins og verkefnisstjóri Fornverkaskólans, sjá um efnisöflun og ýmsa viðgerðarþætti sem fara fram utan námskeiðanna. Tvö námskeið Fornverkaskólans voru haldin á Tyrfingsstöðum sl. sumar með alls tíu nemendum og að auki fengu átta nemar frá Landfræðideild háskólans í Southern Connecticut dags tilsögn í torfhleðslu.
Hlaðnir voru upp veggir búrs norðan við framhúsið. Smíðuð var grind í það, reft á þak og tyrft yfir. Einnig var smíðuð grind og þak í búr austan bæjarganga sem hlaðið var upp sumarið 2010. Þá voru hlaðnir gangaveggir sem liggja frá búri yfir í hlóðaeldhús og fjós. Göngunum var lokað og tyrft yfir. Utan námskeiðanna fer fram efnisöflun, meðferð efnis og frágangur og smíðar sem henta ekki fyrir námskeið. Bragi smíðaði t.d. framhúsgluggana og setti í fyrir nokkrum dögum.
Á Tyrfingsstöðum hefur nú verið gert við, að hluta eða öllu leyti, tvenn fjárhús, hestarétt, framhús, búr og hlóðaeldhús. Á næsta ári er fyrirhugað að gera við fjósið og jafnvel að hefja viðgerðir á baðstofunni en það eru tvö síðustu húsin í gamla bænum sem bíða viðgerða. Þá á eftir að gera við hesthús, tvenn fjárhús og hlöðu niður á túni, hrútakofa og hesthús á bæjarhólnum.
Á þeim 5 árum sem Tyrfingsstaðaverkefnið hefur staðið yfir hafa yfir 100 nemendur sótt námskeið Fornverkaskólans þar í gömlu byggingahandverki: torfhleðslu, grjóthleðslu, grindarsmíði, gluggasmíði, timburviðgerðum og vinnslu rekaviðar.
/Byggðasafn Skagfirðinga