Ylja heldur útgáfutónleika í Hvammstangakirkju

Hljómsveitin Ylja sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu nú á föstudaginn og mun í kjölfarið halda fimm útgáfutónleika víðsvegar um landið á næstu vikum, m.a. í Hvammstangakirkju föstudaginn 30. nóvember.

Platan heitir einfaldlega Ylja en sveitin samanstendur af þeim Bjarteyju Sveinsdóttur, Guðnýju Gígju Skjaldardóttur og Smára Tarfi Jósepssyni. Tónleikaferð Ylju hefst sama dag og platan kemur út, þ.e. föstudaginn 16. nóvember:

  • Föstudagur 16. nóvember, Stykkishólmur - Stykkishólmskirkja
  • Laugardagur 17. nóvember, Patreksfjörður - Sjóræningjahúsið
  • Föstudagur 30. nóvember, Hvammstangi - Kirkjan
  • Laugardagur 1. desember, Akureyri - Hlaðan, Litla-Garði
  • Fimmtudagur 6. desember, Reykjavík - Kex Hostel

Heimild: Rúv.is

 

Fleiri fréttir