Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn föstudaginn 15. apríl 2016 í Miðgarði í Skagafirði. Á ársfundinum er fjölbreytt dagskrá og þar verður meðan annars veitt hin árlega viðurkenning Landstólpinn.
Stóra upplestrarkeppnin var haldin í sal bóknámshúss FNV í gær og þar öttu kappi tólf nemendur úr öllum grunnskólunum Skagafjarðar og lásu textabút úr sögu og tvö ljóð. Nemendurnir stóðu sig með stakri prýði og báru þess glöggt vitni að hafa æft sig af kappi og fengið góða þjálfun hjá kennurum sínum. Nemendur Tónlistarskóla Skagafjarðar léku svo nokkur lög fyrir gesti hátíðarinnar.
Að þessu sinni er það Svavar Sigurðsson mjólkurfræðingur hjá Mjólkursamlagi KS sem svarar Tón-lystinni. Svabbi er fæddur 1969, sonur Helenu Svavarsdóttur og Reynis Barðdal, fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og segist heimakær með afbrigðum. Verkfæri Svabba í tónlistinni er gítar og spurður um helst tónlistarafrek svarar hann: „Hljómsveitin Herramenn á sínum tíma, það var nú alveg nægilegt fyrir mig.“
Símafyrirtækið Nova hefur nú sett upp 4G sendi og langdrægt 3G sem mun efla samband á Sauðárkróki. „Við hlökkum til að geta þjónustað viðskiptavini okkar í þessum landshluta enn betur og bjóðum alla velkomna í háhraða 4G net,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Föstudaginn 15. apríl fer lokakeppni stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar fram. Alls taka 17 keppendur þátt að þessu sinni og eins og áður eru vegleg verðlaun í boði. Fjöldi styrktaraðila kemur að keppninni, en henni er ætlað að vekja áhuga ungs fólks á námi í stærðfræði og tæknigreinum.
Söngskemmtunin Manstu gamla daga stendur yfir í Skagafirði þessa dagana og þetta í sjötta sinn sem hún er sett upp. Um er að ræða skemmtun í tali og tónum og að þessu sinni er sögusviðið Skagafjörður kringum 1970.
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga er fastur liður í aðdraganda Sæluviku Skagfirðinga og nýtur mikilla vinsælda. Margir glíma við fyrripartana og senda inn botna sem og semja vísur um fyrirfram gefið efni. Safnahús Skagfirðinga stendur enn vaktina og sendir út fyrriparta til hagyrðinga sem fyrr og verður hún með sama sniði og undanfarin ár.
Undirbúningsfundur fyrir stofnun Kvennaklúbbs Kiwanis í Skagafirði verður haldinn á Gott í gogginn á Sauðárkróki í dag kl. 17:00. „Áhugi hefur vaknað til að stofna Kvennaklúbb Kiwanis hér í Skagafirði. Það eru einungis fjórir Kiwanis kvennaklúbbar starfandi á Íslandi og einn í Færeyjum. Ísland-Færeyjar er sama umdæmið,“ útskýrir Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir í samtali við Feyki.
Haukar komu í heimsókn í Síkið í kvöld á afmælisdaginn sinn og stefndu að sigri gegn liði Tindastóls í fjögurra liða úrslitum Dominos-deildarinnar. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann og úrslitin ekki ljós fyrr en eftir að leik lauk. Þá kom í ljós að Helgi Margeirs hleypti af byssunni sekúndubroti of seint og leiktíminn úti þegar þristurinn þaut af stað í átt að körfunni. Haukar fögnuðu því sæti í úrslitarimmunni gegn KR eða Njarðvík og verður að segjast eins og er að þeir voru sterkara liðið í einvíginu. Lokatölur urðu 68-70.
Þar sem heitar umræður hafa spunnist um byggingu menningarhúss í Skagafirði finn ég mig knúna til að greina frá því hvaða þýðingu þessi framkvæmd hefur fyrir starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga. Þörf Byggðasafns Skagfirðinga fyrir varanlegt varðveislurými undir safnkostinn er grundvöllur áframhaldandi starfsemi safnsins. Um er að ræða framkvæmd sem á sér mjög langan aðdraganda. Kallað hefur verið eftir íbúakosningu vegna framkvæmdarinnar þar sem spurt er hvort Skagfirðingar vilji yfir höfuð menningarhús. Í ljósi þess sem er í húfi snýst spurningin í raun ekki um menningarhús – heldur þetta: Vilja Skagfirðingar tryggja framtíð safna í héraðinu?
Þegar Írland gekk í Evrópubandalagið árið 1973 (forvera Evrópusambandsins, ESB) var sameiginlega sjávarútvegsstefnan enn í mótun. Í aðildarviðræðunum lagði Írland mikla áherslu á stöðu strandbyggða og verndun nálægra fiskimiða. Niðurstaðan varð sú að m.a. var kveðið á um takmarkaðan aðgang annarra aðildarríkja EB að 6 og 12 sjómílna belti við strendur landsins.
Kosningar til sveitastjórna eru alltaf ákveðin tímamót, krossgötur þar sem við þurfum bæði að líta til baka yfir farinn veg, en einnig til framtíðar og skoða ólíka kosti, hvert viljum við fara og hver er líka á leiðinni þangað.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Það fer ekkert alltaf allt eins og planað er þrátt fyrir góðan vilja. Þannig til dæmis ætlaði snillingurinn sem hún Vigdís Hafliðadóttir er að svara Tón-lystinni og nokkrum spurningum um ferminguna í tíma fyrir útgáfu Fermingar-Feykis. En svo togar lífið í nokkra spotta og tíminn flýgur út i tómið. Vigdís var engu að síður harðákveðin í því að bregðast Feyki ekki og eftir þétta vinnutörn stökk hún í að klára að svara.