Síðasta lag fyrir fréttir

Herra Hundfúll slapp naumlega lifandi frá síðasta lagi fyrir fréttir á Rás1. Mögulega nær hann sér að fullu eftir þessi ósköp sem Ríkisboxið bauð upp á á fyrsta degi samkomubanns hér á Fróni en fyrr má nú aldeilis fyrr vera. Hvers vegna er ekki bara boðið upp á Ðe Lónlí Blú Bojs eða Brikmkló frekar en þetta alíslenska sargandi garg?

Fleiri fréttir