Sýnum tillitssemi

Herra Hundfúll er ekki sérlega natinn við að stunda líkamsrækt. Gæti alla jafna verið á svipaðri bylgjulengd og Sverrir Stormsker í þeim efnum en hann er víst einkum þekktur fyrir að stunda augnlokalyftingar. Það kemur þó fyrir að Hundfúll rölti Ósbrúahringinn og þá fer nokkuð fyrir brjóstið á honum hversu litla tillitssemi ökumenn sína gangandi vegfarendum. Að vísu passa flestir ökumenn sig á því að sveigja frá gangandi vegfarendum en sumum finnst engin ástæða til að hægja ferðina - sumir bæta jafnvel í frekar en hitt. Sýnum tillitssemi - hún kostar ekkert!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir