Aðalfundur Tindastóls
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
17.02.2014
kl. 09.05
Aðalfundur Tindastóls fyrir árið 2013 verður fimmtudaginn 20. febrúar nk. í Húsi frítímans kl. 20:00. Á dagskrá fundarins verðar venjuleg aðalfundarstörf, stofnun nýrra deilda, afhending starfsbikars og úthlutun úr Minningarsjóði um Rúnar Inga Björnsson.
Á fundinum verður boðið upp á veitingar í boði Sparisjóðs Skagafjarðar.
Fleiri fréttir
-
Laufskálarétt laugardaginn 26. september var aðeins blaut en góð
Þegar blaðamaður leit út á laugardagsmorguninn var þétt rigning í Blönduhlíðinni og í bókstaflegri merkingu ekki hundi út sigandi því hundstíkin á heimilinu aftók með öllu að fara út í suddann. Blaðamaður klæddi sig þá í regnúlpu og tókst að fá tíkargreyið með sér út svo hún gæti gert sín nauðsynlegustu stykki. Þá rann það upp fyrir undirrituðum að það væri réttardagur í Laufakálarétt og þangað hafði hann stefnt í erindum fyrir Feyki.Meira -
Bleika slaufan
Bjarkirnar, félagsskapur kvenna í Skagafirði, ætla í októbermánuði að hengja upp bleikar útislaufur á ljósastaura við Aðalgötu og Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Með þessu vilja Bjarkirnar leggja Krabbameinsfélaginu lið í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Bleikar útislaufur verða einnig til sölu á 5.000 kr.Meira -
Skýrsla um ástand lands við bakka Blöndu í Langadal með tilliti til landbrots
Fyrr á þessu ári var birt skýrsla um landbrot á bökkum Blöndu, milli bæjanna Geitaskarðs í norðri og Ártúns í suðri. Úttektin, sem Land og skógur vann, byggði á vettvangsathugunum og greiningu á loftmyndum frá mismunandi tímum. Í niðurstöðum kemur fram að virkjun Blöndu, vegagerð í Langadal og gerð nokkurra varnargarða hafi haft áhrif á rennslismynstur árinnar. Áin hefur í auknum mæli tekið sér ákveðinn farveg, sem hefur bæði aukið staðbundið landbrot og skapað nýtt ræktarland. Sagt er frá þessu á vef Landsvirkjunar.Meira -
Einn besti varnarleikur okkar frá upphafi
Feykir hafði samband við Israel Martín þjálfara í morgun og byrjaði á að spyrja hvað honum fannst um leik Tindastóls og Keflavíkur sem Stólastúlkur unnu í gærkvöldi. „Við höfum verið að aðlaga varnarleikinn okkar vegna þess hve fámennur hópurinn er, og meginmarkmið okkar núna er að spila eins góða vörn og mögulegt er þegar við spilum á hálfum velli. Stelpurnar fylgdu leikskipulaginu nánast fullkomlega. Mikil einbeiting. Sennilega einn besti varnarleikur okkar frá upphafi.Meira -
HÍ á Hólum tók þátt í Vísindavökunni um liðna helgi
Það segir frá því á heimasíðu HÍ á Hólum að skólinn tók þátt í Vísindavökunni sem fram fór í Laugardalshöll laugardaginn 26. september. Þetta var í fyrsta sinn sem HÍ á Hólum tók þátt sem hluti af Háskóla Íslands eftir myndun háskólasamstæðunnar, en Háskólinn á Hólum hefur um árabil verið virkur þátttakandi í Vísindavökunni.Meira
