Bikarleikur hjá stúlknaflokki á morgun
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
16.02.2013
kl. 12.38
Sameiginlegt lið KFÍ og Tindastóls í körfubolta, tekur á móti Keflvíkingum í bikarkeppni stúlknaflokks í Síkinu á Sauðárkróki á morgun sunnudaginn 17. feb. kl. 14.
„Keflavíkurstúlkur eru með sterkt lið en okkar stelpur ætla sér að berjast til síðasta manns. Um að gera fyrir stuðningsmenn að sjá framtíð kvennaboltans hér á Króknum, mæta öflugu liði gestanna,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
