Hellings golf í sumar | Frá Golfklúbbi Skagafjarðar
Golfsumarið er heldur betur komið á fullt. Fyrir utan innanfélagsmótin hjá okkur í boði HardWok og Esju Gæðafæðis þá eru opnu mótin farin að rúlla af stað líka og eru nú tvö opin mót búin og Meistaramót næst á dagskrá sem er hápunkturinn í mótahaldi hjá GSS. Meistaramóts vikan er 29. júní til 4. júlí og má þá búast við fjölmenni á vellinum og skemmtilegri keppni og alveg þess virði að gera sér ferð á Hlíðarendavöll og fylgjast með lífinu þar.
Opna KS mótið í Texas Scramble fór fram 13. júní í ljómandi góðu veðri og vor alls 22 lið sem tóku þátt, eða 44 keppendur. Sigurvegarar mótsins voru Sigríður Elín Þórðardóttir og Andri Þór Árnason á -12. Kaupfélag Skagfirðinga veitti vegleg verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Opna Hlíðarkaups mótið fór svo fram 20. júní, í kannski ekki eins góðu veðri. Norðanáttin var ríkjandi og það var frekar svalt og blautt að margra mati. En allir 24 keppendur skiluðu sér 18 holurnar og þáðu kaffiveitingar á eftir til að ylja sér. Kept var í einu opnum flokk í punktakeppni og það var Árný Lilja sem sigraði með 35 punkta. Líkt og í KS mótinu voru veitt vegleg verðlaun fyrir 5 efstu sætin og svo einnig nándarverðlaun á par 3 brautunum. Við þökkum Hlíðarkaup og Ásgeiri kærlega fyrir stuðninginn og vonum að þótt að þetta hafi verið síðasta mótið undir stjórn Ásgeirs að við sjáum áfram Hlíðarkaups mót á vellinum hjá okkur á komandi árum.
Það er svo nóg framundan hjá okkur það sem eftir lifir af sumri og hlökkum við til að sjá sem flesta á vellinum.
Golfkveðja Mótanefnd GSS

Fleiri fréttir
-
Lögreglan er sátt við helgina
Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðvesturlandi má lesa þessa ánægjulegu færslu: „Laufskálaréttarballið, fjölmennasti dansleikur svæðisins ár hvert, var haldið í gærkvöldi. Þar koma jafnan saman hátt í 1.000 manns og því skiptir miklu máli að allir leggist á eitt um að skapa öruggt umhverfi.Meira -
Skagfirsk hlaupakona í landsliðinu
Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk. Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum.Meira -
Sigurdís snýr heim með nýja plötu
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 28.09.2026 kl. 09.45 hinrik@feykir.isTónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr aftur á heimaslóðir með sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna. Sigurdís verður með þrenna útgáfutónleika á Norðvesturlandi af þessu tilefni. Hún hefur leikinn í Blönduóskirkju 31.okt. kl: 14. 1.nóv. verður hún í Hvammstangakirkju kl: 14. Tónleikaröðinni lýkur svo Miðgarði í Varmahlíð 4. nóv. og hefjast tónleikarnir kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir vara í klukkustund og boðið verður upp á vöfflukaffi að tónleikum loknum.Meira -
Risarnir frá Litháen lagðir í parket
Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu lið BC Jonava í Litháen í dag þegar Stólarnir spiluðu annan leik sinn í ENBL-deildinni þetta tímabilið. Arnar þjálfari var ánægður með liðið sitt og benti á í samtali við Feyki að þarna hefðu Stólarnir verið að spila við risalið frá einni stærstu körfuboltaþjóð Evrópu. „Það er mjög stórt fyrir íslenskt lið að koma og vinna lið í efstu deild í Litháen,“ sagði Arnar og jaðraði við að hann væri pínu montinn. Leikurinn var lengstum jafn en okkar menn voru sterkari á endasprettinum og unnu leikinn 71-77.Meira -
Hlekkur á leik BC Jonava og Tindastóls
Evrópurúntur Tindastóls heldur áfram en í dag kl. 13:45 hefst annar leikur okkar manna í ENBL-deildinni. Andstæðingarnir í dag eru lið BC Jonava frá Litháen. Hægt er að finna hlekk á leikinn þegar fréttin er skoðuð nánar en beint streymi er á Tindastóll TV.Meira
