Jólamót UMSS 20. desember
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
19.12.2012
kl. 08.17
Jólamót UMSS í frjálsíþróttum verður haldið í Íþróttahúsinu í Varmahlíð fimmtudaginn 20. desember og hefst það kl. 16. Keppt verður í aldursflokkum karla og kvenna frá 10 ára aldri. Í kúluvarpi verður skipt í flokka eftir þyngd kúlu.
Keppnisgreinar:
- Kúluvarp og hástökk með atr.,
- langstökk, þrístökk og hástökk án atr..
UMSS óskar eftir því að sem flestir geti aðstoðað við mótið.