Sjö Skagfirðingar í úrvalshóp unglinga FRÍ
Á nýjum lista Frjálsíþróttasambands Íslands yfir “Úrvalshóp unglinga 15-22 ára”, eru sjö Skagfirðingar af 91 íþróttamönnum sem staðist hafa mjög ströng lágmörk um árangur, sem sett eru til inngöngu í hópinn. Unglingarnir koma víða að af landinu og eru frá 13 félögum og samböndum. Þar eru ÍR-ingar fjölmennastir eða alls 19, FH-ingar og Blikar eru 15, frá HSK 11, Skagfirðingar 7, Akureyringar 7 og færri frá öðrum aðilum, samkvæmt heimasíðu Tindastóls.
Skagfirðingarnir eru:
- Vala Rún Stefánsdóttir (1999)
- Hrafnhildur Gunnarsdóttir (1998)
- Fríða Isabel Friðríksdóttir (1998)
- Einar Örn Gunnarsson (1998)
- Haukur Ingvi Marinósson (1998)
- Þorgerður Bettína Friðirksdóttir (1996)
- Jóhann Björn Sigurbjörnsson (1995)
„Verkefnisstjóri unglingastarfs hjá FRÍ er okkar “gamli” félagi Þórunn Erlingsdóttir. Hlutverk þessa hóps er að hittast fyrir utan frjálsíþróttakeppnina, fá fræðslu, kynnast fyrrum stjörnum, og kynnast innbyrðis á öðrum grundvelli en venjulega,“ segir á Tindastóll.is.