100 nemendur brautskráðir af 10 námsbrautum

Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra slitið í 40. sinn. Mynd: HINIR SÖMU sf.
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra slitið í 40. sinn. Mynd: HINIR SÖMU sf.

Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 40. sinn við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í gær, föstudaginn 24. maí að viðstöddu fjölmenni. Í máli skólameistara, Þorkels V. Þorsteinssonar, kom m.a. fram að 2.677 nemendur hafa brautskráðst frá skólanum frá upphafi skólahalds haustið 1979. Skólameistari greindi m.a. frá því 27 húsasmiðir brautskrást í ár en það er stærsti einstaki hópur iðnmenntaðra sem brautskráðst hefur frá skólanum.

Á heimasíðu skólans kemur fram að stærsti hluti þessara nemenda hefur verið í helgarnámi í húsasmíði en helgarnámið var sett á laggirnar vegna aukinnar eftirspurnar fullorðinna eftir iðnnámi en skólinn býður upp á fjölbreytt iðnnám ásamt hefðbundnum námsleiðum til stúdentsprófs.

Skólameistari ræddi einnig um mikilvægi skólans í samfélaginu, með öflugum framhaldsskóla getur unga fólkið stundað nám í sinni heimabyggð eða sem næst henni en reynslan hefur sýnt að það eykur líkurnar á að unga fólkið festi hér rætur eða snúi heim aftur að loknu framhaldsnámi.

Íris Helma Ómarsdóttir, flutti vetrarannál skólans þar sem stiklað var á stóru í starfsemi hans. Þar kom m.a. fram að á haustönn voru 446 nemendur við skólann. Þar af 167 í hreinu fjarnámi. Nemendur á vorönn voru 488. Þá voru starfsmenn 57 á haustönn en 56 á vorönn.

Að loknum vetrarannál fór fram brautskráning og afhending viðurkenninga, sem var í höndum skólameistara. Alls brautskráðust 100 nemendur af eftirtöldum námsbrautum sem hér segir, en alls voru gefin út 102 prófskírteini:

Stúdentsprófsbrautir: 41
Húsasmíði- og húsgagnasmíði: 28
Meistaranám iðnbrauta: 4
Hestabraut: 3
Kvikmyndabraut: 2

Rafvirkjun: 9
Sjúkraliðabraut: 4
Vélvirkjun og vélstjórn: 8
Meistaranám í húsasmíði: 4
Viðbótarnám til stúdentsprófs/Tæknistúdent: 3

Kristel Eir Eiríksdóttir flutti ávarp brautskráðra nemenda, Atli Gunnar Arnórsson flutti ávarp 20 ára brautskráningarnema og Eva Hjörtína Ólafsdóttir fluttir ávarp 30 ár brautskráningarnema. Að lokum flutti skólameistari brautskráðum nemendum heilræði fyrir lífið, óskaði þeim velfarnaðar og sagði skólanum slitið.

Nemendur sáu um tónlistarflutning við athöfnina. Fyrst flutti Atli Dagur Stefánsson lagið Shallow og spilaði sjálfur undir á gítar. Þá flutti Valdís Valbjörnsdóttir lagið Always Remember Us This Way við undirleik Sæþórs Hilmarssonar en Sæþór spilaði einnig undir hjá Róberti Gunnarssyni sem flutti sönginn um lífið sem Rúnni Júll gerði vinsælt í denn.

Sjá nánar HÉR
Myndir: Hinir sömu sf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir