Ævintýraóperan Baldursbrá

Ævintýraóperan Baldursbrá var m.a. sýnd í Grunnskólanum austan Vatna. Mynd: skagafjordur.is
Ævintýraóperan Baldursbrá var m.a. sýnd í Grunnskólanum austan Vatna. Mynd: skagafjordur.is

Það var líf og fjör hjá yngri nemendum grunnskólanna í Skagafirði í gær þegar útdráttur úr ævintýraóperunni Baldursbrá var sýnd. Var verkið meðal annars sýnt í Grunnskólanum austan Vatna og þar var meðfylgjandi mynd tekin.

Verkið er eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson og byggir tónlistin að hluta á íslenskum þjóðlögum, bæði rímum og þulum og einnig bregður fyrir rappi og fjörugum dansi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið skipaði starfshóp í ágúst 2013 til að gera tillögur um aðgerðaáætlun um menningu barna og ungmenna og var tillagan, list fyrir alla, ein af grunntillögum hópsins.

List fyrir alla er verkefni sem gengur út á að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir