Frambjóðendur og prúðbúnir kjósendur

Prúðbúnir kjósendur á Sauðárkróki. Mynd: PF
Prúðbúnir kjósendur á Sauðárkróki. Mynd: PF

Margir hafa þann sið að mæta prúðbúnir á kjörstað, enda kjördagur hátíðisdagur í hugum margra. Frambjóðendur eru að sjálfsögðu meðal þeirra sem ekki láta sig vanta á kjörstað. Bjarni Jónsson sem skipar annað sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs kaus á Sauðárkróki upp úr klukkan níu í morgun. Gunnar Bragi Sveinsson oddviti Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi kaus einnig á Sauðárkróki fyrir hádegi í dag. Eva Pandora Baldursdóttir, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, kaus sömuleiðis á Sauðárkróki, um klukkan fjögur í dag.

Meðfylgjandi myndir eru teknar á kjörstað á Sauðárkróki og í Varmahlíð í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir