Jólabarnaball Lions á morgun

Jólasveinar á Jólabarnaballi Lions í FNV. Mynd: Úr safni Feykis.
Jólasveinar á Jólabarnaballi Lions í FNV. Mynd: Úr safni Feykis.

Hið árlega Jólabarnaball Lions á Sauðárkróki verður haldið á sal Fjölbrautaskólans klukkan 17 á morgun, miðvikudaginn 28. Desember. Að vanda eru allir hjartanlega velkomnir, börn og fullorðnir.

Nemendur í 10. bekk Árskóla munu syngja og dansa við jólatréð og jólasveinarnir koma með glaðning. Öll börn fá svo kveðjugjöf. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir