Ný íslensk Ave Maria

Alexandra Chernyshova
Alexandra Chernyshova

Ave Maria er nýtt íslenskt klassískt lag en lagið er eftir Alexöndru Chernyshovu sem fædd og uppalin er í Kænugarði, Úkraínu. Textinn í verkinu er eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur leikonu og svo hefur Rúnar Krisjtánsson frá Skagaströnd sett texta Guðrúnar í ljóðaform. Alexandra tileinkar þetta lag þremur einstökum konum í lífi hennar. Það eru þær eru Evgenia Chernyshova, Elísabet Jensdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir.

Alexandra skifaði óperuna „Skáldið og Biskupsdóttirin” við handritið Guðrúnar Ásmundsdóttir og hefur frumsýnt óperuna í konsert uppfærslu við góðar undirtekir í Hallgrímskirkju í Saurbæ, árið 2014. Hið fallega Ave Maria er eitt af lögunum úr verkinu. Hægt er að nálgast nýju nótnabókina hennar Alexöndru, 14 lög í útsetningu fyrir rödd og píanó úr óperunni „Skáldið og Biskupsdóttirin” í Tónastöðinni, Hljóðfærahúsinu, Blóm og gjafir í Hörpu og Hofi, ef þið viljið spreyta ykkur á laginu sjálf.

Alexandra á sér þann draum að sýna óperuna „Skáldið og Biskupsdóttirin” í heild sinni á sviði Íslensku óperunnar eða Þjóðleikhúsinu. Framundan er kynning á óperunni í Moskvu í haust.

Hægt er að fylgjast með verkefnum Alexöndru Chernyshovu á Facebook síðu hennar. Myndbandið við Ave Maria má sjá hér.

 

Hér er textinn við lagið Ave Maria

 

Ave Maria

 

Móðir Drottins míns ég þakka,

mikils verðan kærleik þinn,

þakka fyrir þína elsku,    

þína elsku sem ég finn,   

þakka fyrir fjársjóð gefinn,   

fyrir litla drenginn minn.   

 

Móðir Drottins, móðir varstu,  

mest á jörð með kærleik þinn.  

Einnig fast við brjóst þitt barstu  

barn – og það var Drottinn minn!  

 

Móðir Drottins, þér ég þakka,  

þína gæsku sem ég finn,   

þakka fyrir styrk og stuðning, 

stóran kærleiksfaðminn þinn, 

þakka fyrir fjársjóð gefinn,   

fyrir litla drenginn minn.

 

Móðir Drottins, móðir varstu,  

mest á jörð með kærleik þinn.  

Einnig fast við brjóst þitt barstu  

barn – og það var Drottinn minn !  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir