Rakelarhátíð á sunnudaginn

Áftagerðisbræður flytja fagra tóna.
Áftagerðisbræður flytja fagra tóna.

Fjáröflunarskemmtun til styrktar Minningarsjóði Rakelar Pálmadóttur verður haldin í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi sunnudaginn 9. október kl. 14.

Álftagerðisbræður flytja fagra tóna. Ræðumaður dagsins er Brynjar Sindri, bóndi í Miðhúsum og lífskúnstner með meiru. Nemendur Grunnskólans og Tónlistarskólans sjá um fjölbreytt skemmtiatriði. Að dagskrá lokinni verður boðið upp á margrómað kaffihlaðborð. Í tilkynningu um viðburðinn er tekið fram að posi verði á staðnum en miðaverð er kr. 2000 fyrir fullorðna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir