Sæluvikan heldur áfram

Dagsskrá dagsins. Mynd:skagafjordur.is
Dagsskrá dagsins. Mynd:skagafjordur.is

Það er föstudagur í Sæluviku og ýmislegt í gangi. Söfnin eru opin; Safnahúsið með sína Indriða sýningu, Vatnaveröldin hans Ómars er opin frá 1. til 5. Eyþór Árna heldur áfram sínu ljóða ferðalagi og verður á Reynistað kl:5. Krakkar frá Ársölum syngja í Skagfirðingabúð kl:10.15.
Lokaspretturinn í KS. deildinni í hestaíþróttum hefst kl:6 í reiðhöllinni þar sem tölt og skeið ráða ríkjum.
Ekki væri amalegt að skella sér á gömludansaball hjá Pilsaþyt en það skrall verður í Miðgarði milli 8 og 11.
Leikfélagið frumsýnir „Á sama tíma að ári" kl:8 í Bifröst og má lofa góðri skemmtun þar.
Síðast en ekki síst er Skagfirski Kammerkórinn með tónleika í Hofsóskirkju kl:8.

Sælan heldur svo áfram alla helgina. /hmj

Fleiri fréttir