Vinna við tvöföldun gagnavers á Blönduósi hafin
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Mannlíf, Lokað efni
16.06.2026
kl. 09.40
Séð yfir gagnaver Borealis á Blönduósi og fjærst má sjá vinnuvélar vinna þar sem nýbyggingin mun rísa. SKJÁSKOT AF SÝN
Vísir sagði frá því í gær að framkvæmdir væru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis á Blönduósi til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á vinnu allt að 200 manns á verktíma. Haft er eftir Guðmundi Hauki Jakobssyni oddvita sveitarstjórnar Húnabyggðar að á milli 30-40 ný varanleg störf verði til í héraðinu vegna gagnaversins.
