Rabb-a-babb 124: Gaui

Nafn: Guðjón Örn Jóhannsson
Árgangur: 1975 jafngamall Begga og Boheimian Rapsody
Fjölskylduhagir: Kvæntur Gilsaranum úr Tröð Önnu Leu Gestsdóttur og á þrjár dætur með henni.
Búseta: Hólatún 2 Sauðárkróki.
Hverra manna ertu og hvar upp alinn: Ég er sonur mömmu og pabba sem koma frá Akranesi og Drangsnesi á Ströndum. Ég er alinn upp á Suðurnesjum nánar tiltekið í Garðinum fram til 8 ára aldurs og í Keflavík eftir það til 20 ára aldurs.
Starf / nám: Íþróttafræðingur með UEFA A knattspyrnuþjálfararéttindi. Er einnig menntaður húsamálari og má kalla mig svein í þeirri grein. Ég starfa við áhugamálið mitt íþróttir, kenni þær í Árskóla og þjálfa knattspyrnu hjá Tindastól. En aðalatvinna mín í dag er Verkefnastjórn Vinaliðaverkefnisins þar sem ég þvælist um landið með Gesti samstarfsmanni mínum og fæ fyrirmyndarkrakka í lið með okkur til að setja upp leikjastöðvar í frímínútum á skólalóðinni og bjóða svo öllum að vera með. Við vinnum svo í sameiningu að því að sporna gegn einelti.
Hvað er í deiglunni: Jólin og afmælisferðin til Englands þar sem ég ætla að sjá þrjá fótboltaleiki með æskuvinum af Suðurnesjunum.

Hvernig nemandi varstu?  Afskaplega þægilegur, efast jafnvel um að kennarar muni eftir mér J

Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum?
 Hárgreiðslan

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? 
Atvinnumaður í knattspyrnu.

Hvað hræðistu mest? 
Úff er hræddur maður í eðli mínu og get ekki gert upp á milli þeirra atburða sem gætu gerst og ég hræðist mest. En svo ég nefni eitthvað þá hræðist ég stundum Kristbjörgu Kemp deildarstjóra í Árskóla.

Besti ilmurinn? Ég elska ilminn af góðum bakstri. Konuilmurinn er góður en ég nota Code frá Armani á kvöldin.

Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Eins og með flest annað í mínu fari þá á fólk örugglega eftir að hrista hausinn þegar ég segi frá þessu. Til skiptis hlustaði ég á Pearl Jam, Celine Dion og Enyu.

Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Listen to Your Heart með Roxette.

Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Fótbolta og körfubolta.

Besta bíómyndin? Ég held að Forrest Gump hafi vinningin á Braveheart og Shawshank Redemtion.

Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Í dag er það Gunnar Nelson. Það hreyfir engin meira við mér en hann. Annars held ég mikið upp á ungu Tindastólsleikmennina í Körfunni, áræðnir og ekki hræddir við neitt. Leikmenn að mínu skapi.

Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? 
Flest sem ég geri, ég er ekki látinn gera það sem ég geri ekki betur en aðrir.

Hvert 
er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?  Örugglega uppvaskið.

Hættulegasta helgarnammið? Lakkrís og Nóa Rjómasúkkulaði.

Hvernig er eggið best? Spælt og linsoðið með kavíar.

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Veikleikarnir. 

Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? 
 Óheiðarleiki.

Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun?  
 Fátt er svo með öllu illt að það boði ekki eitthvað gott. Þú átt að hata að tapa en ekki tapa lærdómnum af því að tapa.

Hver er elsta minningin sem þú átt?  Íbúðin í bílskúrnum sem við bjuggum fyrst í ég, mamma og pabbi.

Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? 
 Mörgæsirnar frá Madagaskar. Finnst alltaf skemmtilegast í félagsskap með öðrum og á nokkra svona hópa sem líkjast þeim. Helst þó Ljóskan og Spilaklúbburinn Þórunn sem og lærdómshópurinn Kim.

Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Brad Pitt eða George Clooney af því að Anna Lea er svo hrifin af þeim.

Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur?  Íslenskir: Arnaldur, Stefán Máni.  Erlendir: Jo Nesbo, Johan Grisham

Orð eða frasi sem þú notar of mikið?  Hvar er Gestur?

Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? 
Það hlýtur að vera Konni hann er búin að kenna öllum ;-) Siggi Jóns fylgir honum fast eftir.

Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Ég færi líklega aftur til 1996 til að velja annan lífstíl. Tæki samt fjölskylduna með J

Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Þar sem Gestur vinur minn heldur því fram við mig að heimaslóðir mínar sé skítaplaeis þá myndi ég kannski kalla mína sögu: “Úr öskunni í eldinn”

Framlenging:

Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...
Las Vegas

Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?  Tennisbolta til að nudda mig, blakbolta til að tala við og fótbolta til að leika mér við. Ef fjórði fengi að koma með þá yrði það sólarvörn. 

Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Stýra fótboltaæfingu við boðlegar æfingaaðstæður hjá félaginu mínu Tindastól. Renna mér í vatnsrennibraut nýju sundlaugarinnar á Sauðárkróki og syngja dúett með Ægi  í splúnku nýju og vel heppnuðu menningarhúsi á Sauðárkróki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir