Rabb-a-babb 90: Hjörtur Geirmunds

Nafn: Hjörtur Geirmundsson.
Árgangur: 1967.
Fjölskylduhagir:  Giftur Katrínu Gylfadóttur og við eigum Arnar Geir, Elvar Inga og Önnu Karen.
Búseta: Efsta gatan í Raftahlíðinni í bráðum 20 ár.
Hverra manna ertu: Sonur Mínervu Björnsdóttur og Geirmundar Valtýssonar.
Starf / nám: Hugbúnaðarsérfræðingur hjá Advania
Bifreið: Toyota Landcruiser
Hestöfl: Í kringum 160
Hvað er í deiglunni:  Haustverkin, síðustu golfmótin að klárast og Upparnir að byrja sitt 26. tímabil í körfunni.

Hvernig hefurðu það? : Ég er nú bara nokkuð góður.
Hvernig nemandi varstu? Held ég hafi verið alveg þokkalegur.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Hvað við flestir strákarnir voru rosalega litlir (svo fór nú að rætast úr því).
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Bóndi.
Hvað hræðistu mest? Að ég eða mínir nánustu lendi í slysi eða veikist alvarlega.
ABBA eða Rolling Stones? Abba.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Highway to hell með AC/DC.
Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Eitthvað með Bítlunum.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Spurningabomban er algjör snilld.
Besta bíómyndin (af hverju)?  Enemy at the gates ( hef alltof mikinn áhuga á öllu sem tengist seinni heimsstyrjöldinni)
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Erfið þessi…
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?  Að setja í uppþvottavélina.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann?  Lin horn frá Sauðárkróksbakaríi.
Hvað er í morgunmatinn? Morgunkorn eða hafragrautur.
Hvernig er eggið best?  Frekar linsoðið.
Uppáhalds málsháttur?  Betra er að fara á kostum en taugum.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Hómer Simpson.
Hver er uppáhalds bókin þín?  Gamlinginn.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... Í sólina að spila golf.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Smámunasemi (er í Meyjunni).
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Svikin loforð.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Liverpool, spurning um lífsstíl.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Er mjög stoltur af strákunum mínum.
Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera og af hverju? – Finnst ég nú bara alveg þokkalega frægur!!!
Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Foreldrar mínir.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Eldfæri, hníf og Biblíuna.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Ekki farinn að hugsa svo langt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir