10,7% höfðu kosið í Skagafirði klukkan 12

Dyraverðir á kjörstað í morgun. Mynd: KSE
Dyraverðir á kjörstað í morgun. Mynd: KSE

Samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi höfðu 10,7 % kosið í Skagafirði klukkan 12. Ekki lágu fyrir tölur úr öllu kjördæminu þegar Feykir sendi fyrirspurn til kjörstjórnar. Blaðamaður Feykis brá sér á kjörstað á Sauðárkróki skömmu eftir að þar var opnað í morgun. Þar voru meðfylgjandi myndir teknar.

Feyki er kunnugt um að á Sauðárkróki bjóði Framsóknarflokkurinn upp á kosningarkaffi í Framsóknarhúsinu, Sjálfstæðisflokkurinn á Mælifelli og Vinstri græn og óháðir á Kaffi Krók. Á öllum þessum stöðum verður opið frá kl. 14 til 17. Kosningavaka hefst svo í Framsóknarhúsinu kl. 22 í kvöld.

Vinstri græn hafa þegar opnað kosningakaffi á Blönduósi, en þar er opið frá kl. 12-18, í Samstöðusalnum að Þverbraut 1. Sjálfstæðisflokkurinn í Vestur-Húnavatnssýslu verður með kosningakaffi í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Kvenfélag Akrahrepps verður með kaffisölu á kjörstað í Héðinsminni frá klukkan 12 í dag. Feyki hafa ekki borist upplýsingar um fleiri staði í kjördæminu sem bjóða upp á kosningakaffi eða kosningavökur.

Eins og fram kom í frétt hér á vefnum í morgun loka síðustu kjörstaðir kl. 22 en kosningavökur sjónvarpsstöðvanna byrja um það leyti.

 

Fleiri fréttir