Aðalfundur félags ferðaþjónustunnar
feykir.is
Skagafjörður
19.03.2014
kl. 14.21
Aðalfundur félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði verður haldinn í félagsheimilinu í Hegranesi næstkomandi mánudagskvöld og hefst hann klukkan 19:00. Byrjað verður á hefðbundnum kvöldverði og síðan taka við venjubundin aðalfundarstörf.
Í tilkynningu frá stjórn eru nýir aðila hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér starfsemi félagsins.
Fleiri fréttir
-
Hversu gaman er að vinna KR?
Síðasta umferðin í Bónus deild karla fór fram í gærkvöldi. Lið Tindastóls hélt suður strax á miðvikudag þar sem veðurspáin var hin versta fyrir gærdaginn og þeir mættu klárir í slaginn á Meistaravelli Vesturbæinga þar sem lið KR beið þeirra. Úr varð hörkuleikur, hraður, skemmtilegur og spennandi en það fór svo að lokum að Stólarnir höfðu betur og gulltryggðu þannig annað sætið í deildinni. Lokatölur 99-101.Meira -
Vel heppnuð æfing hjá HSN á Sauðárkróki
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 27.03.2026 kl. 09.40 gunnhildur@feykir.isLæknar hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands fjölmenntu á Siglufjörð helgina 21. og 22. mars en þar var haldin æfing fyrir lækna í bráðainngripum í dreifbýli. Æfingin fór fram undir handleiðslu bráðalækna frá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðstæður á landsbyggðinni geta verið krefjandi og eins og síðustu dagar hafa sýnt þá geta veður og færð haft áhrif á flutning milli svæða.Meira -
Veðrið setur strik í reikininginn hjá Heimismönnum
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 27.03.2026 kl. 09.17 gunnhildur@feykir.isKarlakórinn Heimir stefnir suður á bóginn um helgina. Þeir Heimismenn eru ýmsu vanir á ferðalögum sínum um landið að vetrarlagi, en nú er hins vegar svo komið að vegna veðurviðvarana hafa þeir ákveðið að aflýsa tónleikum áttu að vera á Akranesi í kvöld.Meira -
Hólar í Hjaltadal, “hér og þar og þá og nú.” | Gunnar Rögnvaldsson skrifar
Það var ekki laust við að allmargir velunnarar Hóla í Hjaltadal hrykkju í kút þegar kvisaðist út að ríkisstjórnin hefði heimilað sölu á ýmsum eignum á Hólastað. Í þeim tillögum eru skólahúsið, skólastjórabústaðurinn, búshúsið og fleiri byggingar sem ásamt kirkjunni, hafa verið táknmyndir Hólastaðar í heila öld, fyrirmyndir listaverka sem prýða stofur heimila um allt land. Ástæðan er m.a. talin sú að kostnaður við að bjarga þeim eftir mygluskemmdir sé svo mikill að viðbættum rökum um að skólahúsið henti ekki lengur sem kennslu og skrifstofuhús sk.nýjustu kröfum. Alllengi hefur mátt sjá í hvað stefndi með þessar byggingar og umhverfi og í raun átakanlegt hve ríkið hefur sofið á verðinum og það ekki í fyrsta skipti þegar Hólar eiga í hlut. Helgasti staður landsins á eftir Þingvöllum, vagga kirkju, mennta og menningarsögu landsins, fyrrum höfuðstaður Norðurlands sem reistur var síðast úr rústum fyrir rúmum fjörutíu árum og fékk m.a. umhverfisverðlaun Skagafjarðar 2007. Að það sé ekki meiri metnaður til staðar er sorglegt og niðurlægingin alger þegar bjóða á upp helstu kennileiti staðarins eins og niðursetning á vistabandsárunum. Það virðist vera eins konar lenska hjá hinu opinbera að kosta miklu til nýframkvæmda og í raun á stundum allt of miklu vegna óráðsíu en láta svo eðlilegt og reglubundið viðhald bíða þar til allt er komið á eindaga. Ljósi punkturinn er biskupshús, dómkirkjan og Auðunarstofa sem vígslubiskup hefur undir sínum verndarvæng ásamt nánasta umhverfi og hlúir vel að.Meira -
Skólaheimsókn kennara til Slagelse
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 26.03.2026 kl. 14.35 gunnhildur@feykir.isDagana 19. og 20. mars síðastliðinn heimsóttu kennarar frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra framhaldsskólann Zealand Business College í Danmörku. Skólinn, sem jafnan er nefndur ZBC, er með starfsstöðvar í nokkrum bæjum á Sjálandi. Kennarar FNV heimsóttu skólann sem staðsettur er í Slagelse sem er að mörgu leyti sambærilegur FNV, þar sem boðið er upp á bæði verk- og bóknámsbrautir.Meira
