Alexandra Chernyshova meðal 10 bestu í World Folk Vision

Söngkonan Alexandra Chernyshova, sem lengi bjó í Skagafirði,  komst nýlega í úrslit í alþjóðlegri söngkeppni er hún lenti í 9. sæti af 4000 atriðum í  tónlistarkeppni World Folk Vision. Í keppnina sendi hún frumsamið lag „Ave Maria“ úr óperunni „Skáldið og biskupsdóttirin“ við handrit Guðrúnar Ásmundsdóttur, ljóð eftir Rúnar Kristjánsson. Nótnabók með 14 lögum fyrir rödd og píanó úr óperunni er hægt að kaupa í gegnum heimasíðu Alexöndru: www.alexandrachernyshova.com

Nýtt tónlistarmyndband er um Svanaprinsessuna úr óperunni „Ævintýrið um Tsar Saltan“ eftir tónskáldið Nikolai Rimskiy-Korsakov við ljóð Alexander Pushkin.

„Meðan ég vann að undirbúningi tónleikanna „Russian Souvenir: Alexander Pushkin“, kynnti ég mér mjög vel ljóð Pushkins. Ég heimsótti Pushkin-safnið í St. Pétursborg, las mikið um Pushkin í bókasafninu og spjallað við Pushkin sérfræðinga. Febrúar-tónleikarnir á þessu ári „Russian Souvenir“ í Hörpu, í Reykjavík, fengu hlýlegar móttökur áhorfenda og góða dóma hjá Jónasi Sen tónlistargagnrýnenda. Tónleikarnir voru þeir síðustu fyrir Kovid-19 og auðvitað vildi ég halda áfram. Þetta myndband er líklega framhaldið, lenging á góðu ævintýri. 

Ég hef alltaf hlustað á töfrandi tónlist Rimsky-Korsakov. Ísland er stórkostlega fallegt land, svo ekki var erfitt að finna réttan stað fyrir myndbandið. Maðurinn minn, Jón Hilmarsson er landslagsljósmyndari og einnig photo-guide fyrir atvinnuljósmyndara og áhugamenn og hann lagði til þennan stað, Kleifarvatn, þar sem við tókum myndband um aríu Svanaprinsessunnar.  Kjóll og  myndarammi var sérstaklega valinn fyrirfram.

Veðrið á Íslandi er breytilegt, svo eftir að hafa tekið upp rödd og píanó með píanóleikaranum Kjartani Valdemarssyni þurfti ég að bíða aðeins með myndbandið. Við þurfum að bíða eftir rólegu veðri, sem myndi ramma fallega inn það sem var hugsað í tónlist og aríu í heild, nefnilega það sem við öll viljum - Ljós og kærleika á jörðinni!  Við búumst við kraftaverk og vellíðan á jörðinni. Ég vil líka ráðleggja lestri á Alexander Pushkin fyrir alla, hann er snilldar rithöfundur og ljóðskáld,“ segir Alexandra.

Hér fyrir neðan má sjá nýtt tónlistarmyndband frá söngkonunni sem tekið var upp við Kleifarvatn.

 

 

Fleiri fréttir