Allir voru að dansa
Í gær birtist myndasyrpa frá danssýningu sem fram fór á Dansmaraþoni 10. bekkinga í Árskóla. Hér má svo sjá tveggja mínútna myndskeið frá sýningunni og þarna náði fjörið hámarkinu því allir voru að dansa...
http://www.youtube.com/watch?v=sHLCat0lFr4
Fleiri fréttir
-
Höfundur Ósmanns heimsækir Sauðárkrók
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 28.01.2026 kl. 12.24 gunnhildur@feykir.isFimmtudaginn 29. janúar kl. 17:30 verður Joachim B. Schmidt gestur bókasafnsins á Sauðárkróki, þar sem hann mun lesa upp úr nýútkominni skáldsögu sinni Ósmann. Bókin fjallar um Jón Ósmann, ferjumanninn sem flutti menn og skepnur yfir eitt hættulegasta fljót landsins, Héraðsvötn um áratuga skeið og má segja að hann hafi orðið að þjóðsagnakenndum karakter í Skagafirði.Meira -
Keflavíkurstúlkur höfðu betur í hressilegum leik
Stólastúlkur mættu liði Keflavíkur í gærkvöldi í Bónus deild kvenna í körfubolta og var spilað í Blue-höllinni í Keflavík. Leikurinn var lengstum jafn og spennandi en heimastúlkur náðu góðum kafla í lokafjórðungnum sem tryggði sigurinn. Lokatölur voru 82-75 en liðin skiptust tólf sinnum á um að hafa forystuna og fimm sinnum var allt jafnt.Meira -
Útburður á Feyki og Sjónhorni fer fram á morgun, fimmtudag
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 28.01.2026 kl. 08.20 siggag@nyprent.isÞví miður urðu þau leiðu mistök að Feykir og Sjónhorn bárust ekki á Krókinn í morgun og því ekki hægt að bera út blöðin í dag. Útburður verður því á morgun, fimmtudaginn 29. jan., en fyrir lesþyrsta einstaklinga þá eru bæði blöðin komin á netið og hægt að nálgast hér í fréttinni.Meira -
Nýjar loftmyndir af Norðurlandi vestra komnar í kortasjá
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 28.01.2026 kl. 07.38 oli@feykir.isNýjar loftmyndir voru teknar á Norðurlandi vestra síðastliðið sumar. Þær hafa nú verið birtar á kortasjám sveitarfélaganna sem hægt er að nálgast frá heimasíðu þeirra. Í kortasjánum er einnig hægt að finna upplýsingar um ýmsa þjónustu og afþreyingu eins og sundlaugar, örnefnaskrá og tjaldsvæði svo eitthvað sé nefnt.Meira -
Heather Pinkham með tónleika í Hólaneskirkju
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni 27.01.2026 kl. 12.49 oli@feykir.isÁ morgun, miðvikudaginn 28. janúar klukkan 17-18, verða haldnir píanótónleikar í Hólaneskirkju á Skagaströnd. Flytjandi er Heather Pinkham, tónskáld og píanóleikari, sem dvelur um þessar mundir sem einn af listamönnunum í listamiðstöðinni Nesi.Meira
