Átta í einangrun á Sauðárkróki

Alls eru átta manns í einangrun á Sauðárkróki eftir að hópsmit kom upp fyrir helgi. Mikil ös hefur verið við sýnatökur á heilsugæslunni í bænum og eru alls 316 í sóttkví í Skagafirði en 332 ef Norðurland vestra er allt talið. Yfirhjúkrunarfræðingur biður fólk um að spara hringingar nema mikið liggi við.
Kristrún Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur HSN á Sauðárkróki, segir mikið álag á símkerfinu þar sem fólk hringi mikið út af hinum ýmsum málum. Vildi hún koma því á framfæri að fólk gæti komið í sýnatöku á heilsugæsluna á Sauðárkróki þrátt fyrir að hafa fengið boð um að mæta annars staðar, jafnvel á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir að mikið hafi verið að gera í morgun en allt gengið vel.
Lögreglan stóð vaktina og aðstoðaði
fólk sem þurfti að mæta í sýnatökur.
Lögreglan var m.a. á staðnum og aðstoðaði við skipulag og framkvæmd enda mynduðust löngum biðraðir. Bólusetning heldur áfram eftir plani og er stefnt á næsta miðvikudag og fá þeir sem næstir eru á listanum að öllum líkindum boð þar að lútandi á morgun.
Svona var staðan á Skagfirðingabrautinni
korter í 12 á mánudegi, enginn bíll á ferðinni.
Á Sauðárkróki hefur hægst á öllu, mörg fyrirtæki og stofnanir hafa lokaðar dyr og meira er um heimavinnu en áður. Starfsemi á öllum skólastigum liggur niðri sem þýðir að margir foreldrar eru heima með yngstu börnunum. En þrátt fyrir öll óþægindin má finna fyrir mikilli samstöðu og samfélagið allt ákveðið að tækla þennan veirufjanda með skynsemi og árangursríkum samtakamætti.
„Förum varlega, munum sóttvarnirnar og þá komumst við saman í gegnum þetta verkefni!“ segir í tilkynningu almannavarna á Norðurlandi vestra.
Hér fyrir neða má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í morgun. Eins og sjá má eru ýmsar takmarkanir í gildi en alls staðar leita'ðð lausna. Þá er sums staðar unnið af krafti þó ástandið hafi verið betra í bænum.