Auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina 2020

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir Eyrarrósina 2020 en Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefnum, utan höfuðborgarsvæðisins, sem þegar hafa fest sig í sessi. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. ByggðastofnunAir Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík hafa staðið saman að verðlaununum frá upphafi, eða frá árinu 2005.

Umsækjendur um Eyrarrósina geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð. Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofnunar, Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar, tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina ásamt veglegum peningaverðlaunum. Hin tvö tilnefndu verkin hljóta einnig peningaverðlaun.

Verndari Eyrarrósarinnar er Eliza Reid, forsetafrú.

Umsóknarfrestur vegna Eyrarrósarinnar 2020 er til miðnættis 7. janúar 2020 og hægt er að smella hér til að sækja um.

Hér má sjá lista yfir handhafa Eyrarrósarinnar frá upphafi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir