Bændafundir Líflands í næstu viku
Lífland hefur um árabil verið í fararbroddi við að halda fræðslufundi fyrir íslenska kúabændur. Í ár munu fundirnir verða haldnir á átta stöðum á landinu dagana 24. – 28. nóvember. Aðalfyrirlestur fundanna ber heitið „Hvernig auka má fitu í mjólk á markvissan hátt“.
Á dagskrá fundanna verður að vanda samantekt á niðurstöðum heysýnagreininga og samanburður við fyrri ár. Þá verður hollenska fóðuráætlunarkerfið NutriOpt kynnt, en ráðgjafar Líflands geta nú útbúið fóðuráætlanir fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Fyrirlesarar verða Gerton Huisman, sérfræðingur hjá Trouw Nutrition í Hollandi, auk ráðgjafa Líflands. Hluti fyrirlestranna mun fara fram á ensku, en verður þýddur jafnóðum á íslensku. Boðið verður upp á veitingar og eru allir velkomnir.
Fundirnir fara fram á eftirtöldum stöðum:
Fimmtudagur 27. nóvember kl.11:30 Hótel Varmahlíð
Fimmtudagur 27. nóvember kl.20:30 Harmonikkusalurinn Blönduósi