Blíðviðri á degi Marks Watson
Síðastliðinn sunnudag, 19. júlí, var hátíðlegt um að litast í Glaumbæ er Mark Watson dagurinn var haldinn hátíðlegur. Á Facebook síðu Byggðasafns Skagfirðinga kemur fram að verið var að minnast þessa merka Íslandsvinar sem var hugfanginn mjög af landi og þjóð, þó sérstaklega Glaumbæ. Vanalega er dagurinn haldinn hátíðlegur á afmælisdegi hans, 18. júlí, en í ár færðist dagskráin til vegna lélegs veðurútlits.
Hefðbundin dagskrá var sniðin að Íslandsvininum, börnum boðið að taka þátt í gömlum leikjum, íslenski fjárhundurinn kíkti í heimsókn og gafst ungum gestum tækifæri á að skreppa á hestbak. Að venju svignuðu borðin undan kræsingunum í Áskaffi.
Robert Mark Watson (1906-1979) var skoskur aðalsmaður og kom oft hingað til lands. Árið 1938 gaf hann 200 sterlingspund til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ sem átti sinn þátt í að bærinn er enn varðveittur. Má segja að með þessari gjöf hafi skapast grundvöllur fyrir Byggðasafni Skagfirðinga en það var stofnað árið 1948. Mark var einnig mjög hugfanginn af íslenska fjárhundinum og vilja margir meina að það sé honum að þakka hversu vel hefur tekist að varðveita hreinleika kynsins. Er það því vel við hæfi að Dagur íslenska fjárhundsins beri upp á afmælisdegi Mark, 18. júlí.
Hér er hægt að lesa meira um Mark Watson.
/SHV