Blóðbankabíllinn á Sauðárkróki og Blönduósi í dag
Blóðbankabíllinn er staðsettur á bílastæðinu við Skagfirðingabúð og verður þar fram að hádegi í dag, miðvikudaginn 10. september. Eftir hádegi heldur heldur hann áfram för sinni um Norðurlandið og kemur við á Blönduósi við N1.
„Ef þú ert fullfrísk(ur), notar engin lyf, ert á aldrinum 18-60 ára og vegur meira en 52 kíló getur þú bjargað mannslífi á einfaldan hátt með því að gefa dýrmæta gjöf, blóðgjöf,“ segir á vef Blóðbankans.
Til að mæta þörfum samfélagsins, þarf Blóðbankinn um 70 blóðgjafa á dag. „Allir velkomnir í bílinn jafnt nýir sem vanir blóðgjafar.“