Bók um Hannes Pétursson

Bókaútgáfan Opna hefur gefið út bókina JARÐLAG Í TÍMANUM – Minningamyndir úr barnæsku, eftir skáldið Hannes Pétursson. Skáldið Hannes Pétursson tekur sér stöðu á Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók og skyggnist yfir svið bernsku sinnar norður í Skagafirði, rifjar upp mannlífið á Króknum, sumrin frammi í sveit, vegagerð á stríðsárunum og dregur upp minnisstæðar myndir af samferðamönnum í listilega smíðuðum frásögnum. Hér er lýst miklum breytingartímum sem mótuðu ungan Skagfirðing en umturnuðu einnig landinu öllu, heiminum öllum.

 

“Þú álfu vorrar yngsta land” kvað ættjarðarskáld. Vissulega er Ísland ungt á jarðsögulegan mælikvarða. Blágrýtið í Austurfjöllunum gegnt mér er þó fornt innan Íslands, víst 10-12 milljóna ára gamalt, margfalt eldra en mannkynið. Og svo er jarðarhnötturinn aðeins ungur depill í óendanlega fornum geimnum, Ísland depill á jarðarkúlunni, Sauðárkrókur depill innan Íslands og ég sjálfur depill innan þess depils. Af þeirri ástæðu skyldi maður hafa sig hægan.

Hannes er einstakur sögumaður, þekktur fyrir orðauðgi og stílfimi. Minningamyndirnar sem hann bregður upp fyrir lesendur sína eru skýrar, trúverðugar og fallegar – helga sér bólstað í vitund þess er les.

Bókin er 365 bls.

Hönnun og umbrot: Næst/Líba Ásgeirsdóttir

Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf.

Fleiri fréttir