Börn og gæludýr – Vídeó
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
10.02.2019
kl. 12.00
Það er alltaf gaman af myndböndum sem tekin eru af börnum og gæludýrum ekki síst ef þau eiga vel saman. Eftirfarandi fannst á Facebook og fær titilinn Krúttmyndband dagsins.
Posted by కాసేపు హాయిగా నవ్వుకుందాం on Sunnudagur, 29. júlí 2018
Fleiri fréttir
-
Raggi í syngjandi sveiflu gegn Sindra
Tindastólsmenn héldu í suðaustur frá Skagafirði í gær en liðið mætti nýliðum Sindra á Höfn í fyrsta sinn í efstu deild körfunnar í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Hornfirðingar eiga lið í efstu deild og þeir sýndu að þeir geta vel bitið frá sér því Stólarnir lentu í basli. Heimamenn leiddu með einu stigi fyrir lokafjórðunginn en Stólarnir voru grimmir á lokakaflanum, skelltu í lás í vörn og fráköstuðu af miklum móð og unnu leikinn 71-78.Meira -
Tengill styrkir stöðu sína á Eyjafjarðarsvæðinu
Tengill hefur keypt Ljósgjafann á Akureyri. Frá þessu segir á Akureyri.net en þar staðfestir Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri Tengils kaupin en tekur fram að viðskiptin hafi verið send til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu, sem þarf að staðfesta kaupin. Á heimasíðu Ljósgjafana segir að Ljósgjafinn ehf. búi yfir áratuga reynslu í öllu því sem snýr að rafmagni og raftæknibúnaði og þjónusti bæði fyrirtæki og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu af metnaði og alúð.Meira -
Ég myndi keppa við Indriða afa í spretthlaupi
Íþróttagarpur í síðasta tölublaði Feykis var Herdís Erla Elvarsdóttir sem verður 14 ára 29. desember n.k. og er búsett á Hvammstanga. Hestamennskugen standa að Herdísi í báðar ættir en foreldrar hennar eru Fanney Dögg Indriðadóttir frá Grafarkoti í vestur Hún. og Elvar Logi Friðriksson frá Varmalæk í Skagafirði. Herdís Erla hefur því alist upp með hestum og er núna farin að láta að sér kveða á keppnisvellinum.Meira -
Starfsmenn LNV leggjast gegn sameiningu lögregluembætta
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 24.10.2026 kl. 14.15 oli@feykir.isSamkvæmt frétt á vef RÚV hafa starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar kemur fram að þeir leggjast gegn þeim hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta sem birtast í frumvarpsdrögum. Það er mat starfsmanna að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.Meira -
Stórskemmtileg sýning í Laugardalshöllinni
Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2026 var haldin í Laugardalshöll-inni í Reykjavík 9.-11. október 2026. Feykir komst ekki hjá því að uppgötva að Króksarinn Benedikt Rúnar Egilsson (sem flestir þekkja sem Benna í Bílabúðinni þó hann vinni þar ekki lengur) væri einn af þeim aðilum sem ætlaði að kynna vörur og þjónustu á sýningunni. Á leiðinni suður bárust honum því skilaboð þar sem hann var spurður hvort hann gæti tekið að sér að smella myndum af sýningunni fyrir Feyki og ekki síst ef hann rækist á kunnugleg andlit. Það reyndist sjálfsagt mál og þegar myndirnar bárust í tugatali þá varð ekki hjá því komist að spyrja hann aðeins út í bissnesinn og sýninguna.Meira
