Breyttur tími á opnum fundi á Sauðárkróki á laugardag
Sjálfstæðismenn í Skagafirði standa fyrir opnum fundi á Kaffi Krók á Sauðárkróki á morgun laugardag. Áður auglýstur fundartími breytist og hefst fundurinn því klukkan 15:00. Allir eru velkomnir og hvattir til að leyfa fulltrúunum að heyra hvað þeim liggur á hjarta fyrir kosningarnar.
„Við þurfum því miður að seinka fundinum sem haldinn verður á Kaffi Krók um nokkrar klukkustundir. Nýr tími er því laugardagurinn 15. okt. frá 15-17 segir Emilía Ottesen kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.