Dýpkun Sauðárkrókshafnar að ljúka
Framkvæmdum við dýpkun á Sauðárkrókshöfn er að ljúka, eins og sagt var frá á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær. Síðustu daga hefur verktaki verið að ljúka við dýpkun á svæði fyrir framan öldubrjót við hafnarmynnið.
Samtals hefur verið dælt um 20.000 rúmmetrum úr höfninni, úr fyrrnefndu svæði við hafnarmynnið og svæði innan hafnar. Dýpkun innan hafnarinnar gekk erfiðlega sökum þess hversu fínt efnið í botninum er og því erfitt og tímafrekt að dæla því um borð í skipið.
Dýpið á dýpkunarsvæðinu innan hafnar er nú á bilinu 8 til 8,5 m. Lokauppgjör verksins liggur ekki fyrir. Hluta efnisins var dælt í landfyllingu þar sem gamla smábátahöfnin var staðsett. Þeirri uppfyllingu er lokið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, sem fengin era f vef sveitarfélagsins. Aðeins er eftir að keyra þunnu lagi af burðarlagsefni ofan á sandinn.
Í frétt af vef sveitarfélagsins kemur einnig fram að á fjárhagsáætlun þessa árs eru jafnframt sex milljónir sem nota á í að bæta smábátaaðstöðu á Hofsósi.